Afar slæm veðurspá: upplýsingar um opnun stofnana, skólahald, Strætó, móttökustöðvar og hafnir. Íbúar einnig beðnir um að huga að lausamunum.

Fara í efni

Fjölskyldunefnd

52. fundur
2. mars 2026 kl. 16:15 - 18:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Líneik Anna Sævarsdóttir
Magnús Árni Gunnarsson
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir Stjórnandi félagsþjónustu
Dagskrá
1.
Kynning á skráningakerfi fyrir leikskóla Wise
Málsnúmer 2602229
Björn Kristjánsson Kolbrúnarson, Sigrún Gunnarsdóttir og Jón Halldór Oddsson ráðgjafar frá Wise kynntu nýtt skráningakerfi fyrir leikskóla fyrir fjölskyldunefnd.
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir kynninguna.
2.
Styrkumsókn - Sterkari út í lífið
Málsnúmer 2602133
Fjölskyldunefnd fjallaði um styrkbeiðni vegna verkefnisins Sterkari út í lífið. Fjölskyldunefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.
3.
Hjólasöfnun 2026
Málsnúmer 2602195
Hjólasöfnun Reiðhjólabænda 2026 sem áður hét Hjólasöfnun Barnaheilla kynnt fyrir fjölskyldunefnd.
Búið er að opna fyrir umsóknir.
Stjórnanda félagsþjónustu falið að vekja athygli á verkefninu og aðstoða þá sem þurfa við að skila inn umsóknum.
4.
Víkingurinn 2026 - Umsókn um íþróttastyrk
Málsnúmer 2602198
Fjölskyldunefnd fjallaði um styrkbeiðni Félags kraftamanna vegna keppninnar VÍKINGURINN 2026, keppni sterkustu manna landsins.
Fjölskyldunefnd lýsir yfir vilja til að aðstoða við keppnishald með því að veita mótshöldurum almenna aðstoð, aðgang að aðstöðu og útvega gistingu. Því miður er ekki hægt að veita fjárstyrk að þessu sinni.