Fjölskyldunefnd
54. fundur
16. mars 2026
kl.
16:15
-
18:00
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Birgir Jónsson
varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Gunnar Jónsson
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
embættismaður
Guðmunda Erlendsdóttir
embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
Magnús Árni Gunnarsson
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Stjórnandi félagsþjónustu
Dagskrá
1.
Skóladagatöl 2026-2027
Lagt er fram uppfært minnisblað með tillögu að skóladagatölum fyrir skólaárið 2026-2027, ásamt skóladagatölum einstakra skóla. Skóladagtöl staðfest eins og þau liggja fyrir og fræðslustjóra falið að vinna tillögu að endurskoðun á verklagsreglum um staðfestingu skóladagatala.
2.
Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Málið er kynnt og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna áfram að málinu
3.
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Fjölskyldunefnd fór yfir drög að starfsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027 og fól sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna áfram að starfsáætlun miðað við umræður fundarins.
4.
Starfamessa 2026
Starfamessa kynnt og minnisblaði vísað til umsagnar í ungmennaráði og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna áfram að undirbúningi.
5.
Samningur við Brettafélag Fjarðabyggðar
Samningur við Brettafélag Fjarðabyggðar vegna leigu á búnaði í Oddsskarði vegna brettaiðkunar lagður fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs til afgreiðslu.