Fjölskyldunefnd
59. fundur
8. maí 2026
kl.
14:00
-
16:26
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Birgir Jónsson
varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
Bergey Stefánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir
sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Úthlutun til leikskóla 2026-2027
Lögð er fram tillaga að úthlutun kennslutíma til leikskóla fyrir árið 2026-2027.Fjölskyldunefnd samþykkir úthlutun til leikskóla.
2.
Úthlutun til grunnskóla 2026-2027
Úthlutun til grunnskóla Fjarðabyggðar 2026-2027. Fjölskyldunefnd samþykkir úthlutun til grunnskóla.
3.
Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Fjölskyldunefnd samþykkir tillögu stjórnenda fjölskyldusviðs varðandi fyrirkomulag skólastarfs í Breiðdals- og Stöðvarfjarðaskóla. Tillagan er unnin á grunni vinnu ráðgjafa frá Ásgarði skólaráðgjöf þar sem ítarlegt samráð var haft við starfsfólk, nemendur og foreldra. Reynsla af fyrirkomulaginu verður metin fram að áramótum áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref. Áfram verður unnið með samfélaginu, foreldrum og starfsfólki á grunni aðgerðaáætlunar til að styrkja skólastarfið og tryggja farsælt og öflugt námsumhverfi til framtíðar.
4.
Endurskoðun samnings um barnaverndarþjónustu
Endurskoðun samnings um barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og sveitarfélagsins Hornafjarðar. Fjölskyldunefnd samþykkir uppfærðan samning.
5.
Verklagsreglur um fósturráðstafanir - BFSH
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar verklagsreglur um eftirlit með fósturráðstöfunum fyrir barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar og vísar málinu áfram til afgreiðslu í bæjarráði.
6.
Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins kynnt fjölskyldunefnd
7.
Húsnæðismál - Egilsbúð
Fjölskyldunefnd tekur undir með félagi eldri borgara í Neskaupstað að núverando húsnæði sé of lítið. Nefndin felur sviðsstjóra að óska eftir tillögum að breytingum á húsnæðinu þannig að það rúmi starfsemina.
8.
Ungmennaráð - 24
Fundargerð ungmennaráðs frá 29. apríl
9.
Öldungaráð - 26
Fundargerð öldungaráðs frá 29. apríl
10.
Upplýsingagjöf til eldra fólks
Fjölskyldunefnd tekur undir erindi bréfsins.
11.
Tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna
Fjölskyldunefnd samþykkir framkomnar tilnefningar frá leik-, grunn- og tónlistarskóla til Íslensku menntaverðlaunanna.