Fjölskyldunefnd
62. fundur
8. júlí 2026
kl.
16:15
-
18:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Helga Rakel Arnardóttir
varaformaður
Valborg Ösp Árnadóttir Warén
aðalmaður
Anna Guðný Gunnarsdóttir
aðalmaður
Alma Eiðsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir
sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Innra mat grunnskóla skólaárði 2025-2026
Vinna við innra mat í grunnskólum Fjarðabyggðar skólaárið 2025-2026 kynnt, ásamt skýrslum skólanna um innra mat og umbótaáætlunum. Fjölskyldunefnd fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið við innra mat grunnskóla Fjarðabyggðar skólaárið 2025?2026 og gerð umbótaáætlana. Nefndin telur ánægjulegt að sjá markvissa sjálfsmatsvinnu og skýra sýn á áframhaldandi umbætur sem styðja við gæði skólastarfs og farsæld nemenda. Nefndin þakkar starfsfólki skólanna fyrir faglegt og metnaðarfullt starf.
2.
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Starfsáætlun fjölskyldunefndar fyrir 2027 lögð fram til samþykktar. Fjölskyldunefnd samþykkir starfsáætlun fjölskyldunefndar og vísar áfram til umræðu í bæjarráði.
3.
Almenningssamgöngur suðurfirðir
Lagt fram minnisblað um almenningssamgöngur á Suðurfjörðunum með tillögum að breytingum til að styðja við félags- og tómstundastarf barna. Fjölskyldunefnd samþykkir að vísa málinu áfram til bæjarráðs til viðaukagerðar.
4.
Breytt ábyrgðarskipting í málefnum barna með fjölþættan vanda
Samband Íslenskra sveitarfélags vekur athygli á reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem að mati þeirra gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda.
5.
Heil Heim - beiðni um styrk
Samtökin Fræðsla og forvarnir (FRÆ) fara nú af stað með árlegt forvarna- og fræðsluverkefni eins og síðustu 20 ár.
Vímuefnaakstur fer vaxandi og skapar mikla hættu í umferðinni. Við þessu þarf að bregðast, enda um að ræða dauðans alvöru.
Átakið í ár snýr því að ölvunarakstri og heitir ?Heil heim - Hugsaðu um þig og þína - ökum aldrei ölvuð!?
Sérstök áhersla er lögð á ábyrgð ökumanna gagnvart sjálfum sér og öðrum og ábyrgð okkar allra í að koma í veg fyrir akstur undir áhrifum ávana- og vímuefna.
Vímuefnaakstur fer vaxandi og skapar mikla hættu í umferðinni. Við þessu þarf að bregðast, enda um að ræða dauðans alvöru.
Átakið í ár snýr því að ölvunarakstri og heitir ?Heil heim - Hugsaðu um þig og þína - ökum aldrei ölvuð!?
Sérstök áhersla er lögð á ábyrgð ökumanna gagnvart sjálfum sér og öðrum og ábyrgð okkar allra í að koma í veg fyrir akstur undir áhrifum ávana- og vímuefna.