Fjölskyldunefnd
64. fundur
26. ágúst 2026
kl.
16:15
-
17:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Helga Rakel Arnardóttir
varaformaður
Sigrún Eva Grétarsdóttir
aðalmaður
Valborg Ösp Árnadóttir Warén
aðalmaður
Anna Guðný Gunnarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
embættismaður
Bergey Stefánsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Stjórnandi félagsþjónustu
Dagskrá
1.
Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
Stjórnandi fræðslumála- og skólaþjónustu fór yfir upphaf skólaárs.
2.
Afslættir í sund og líkamsrækt í Fjarðabyggð
Fjölskyldunefnd telur ekki ástæðu til breytinga á gjaldskrá líkamsræktarstöðva og sundlauga.
3.
Umsókn um íþróttastyrk
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til Ungmennafélags Vals fyrir árið 2026, í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, sem og úthlutunarreglur um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs. Nánari upplýsingar um úthlutun styrkja og fjárhæðir til einstakra félaga má finna í máli nr. 2606219 „Umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki 2026“.
4.
Umsókn um íþróttastyrk
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til Ungmennafélags Leiknis fyrir árið 2026, í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, sem og úthlutunarreglur um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs. Nánari upplýsingar um úthlutun styrkja og fjárhæðir til einstakra félaga má finna í máli nr. 2606219 „Umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki 2026“.
5.
FIFA Arena - verkefni FIFA og KSÍ
Fjölskyldunefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að hafa samband við íþróttafélögin og kalla eftir þátttöku.