Fræðslunefnd
47. fundur
6. október 2017
kl.
16:30
-
17:30
í Molanum fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Pálína Margeirsdóttir
Formaður
Elvar Jónsson
Aðalmaður
Kjartan Glúmur Kjartansson
Aðalmaður
Guðlaug Dana Andrésdóttir
Varaformaður
Starfsmenn
Þóroddur Helgason
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þóroddur Helgason
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrá tónlistarskóla 2018
Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá tónlistarskólanna í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
2.
Gjaldskrá leikskóla 2018
Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá leikskólanna í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga og úttekt ASÍ á 15 stærstu sveitarfélögum landsins fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
3.
Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2018
Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá á skólamáltíðum í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
4.
Gjaldskrá skóladagheimila 2018
Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrá frístundar (skóladagheimila) í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrár viðmiðunarsveitarfélaga. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
5.
Gjaldskrá grunnskóla 2018
Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrá grunnskóla í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrár viðmiðunarsveitarfélaga fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
6.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd
Farið var yfir fjárhagsáætlun í fræðslumálum og hún borin saman við úthlutaðan fjárhagsramma. Vitað var að töluverður munur yrði á áætlun og úthlutuðum fjárhagsramma þar sem ramminn tók mið af fjölda og rekstri á árinu 2017. Fjölgun nemenda í bæði leik- og grunnskólum kallar á fleiri stöðugildi í skólunum. Nýr samningur um skólamáltíðir sem og samþykkt bæjarstjórnar vorið 2017 varðandi bókun 1 í kjarasamaningi LNS og FG eru atriði sem vitað var að myndi auka kostnað. Munur á fjárhagsáætlun og fjárheimildum er um 3,6%.
Einnig var farið yfir drög að starfsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2018. Fræðslustjóra er falið að ljúka við fjárhags- og starfsáætlun í takt við umræðu í nefndinni.
Einnig var farið yfir drög að starfsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2018. Fræðslustjóra er falið að ljúka við fjárhags- og starfsáætlun í takt við umræðu í nefndinni.
7.
Viðbygging við leikskólann Lyngholt
Fræðslunefnd ræddi um fyrirhugaða stækkun leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði og hvernig bregðast megi við þeirri stöðu sem upp kemur um áramótin 2017-2018 þegar núverandi leikskólahúsnæði getur ekki lengur tekið á móti öllum börnum sem orðin eru 12 mánaða. Fræðslustjóri, leikskólastjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs hafa undanfarið skoðað möguleika á að koma fyrir lausri kennslustofu í námunda við skólann og skoða nýtingu á Félagslundi fyrir leikskóladeild. Það er álit fyrrnefndra aðila að erfitt sé að staðsetja lausa kennslustofu í námunda við skólann án þess að hún stæði í vegi fyrir framkvæmdum við viðbyggingu. Nýting á Félagslundi þykir vænlegri kostur og Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gert úttekt á húsnæðinu og gert athugasemdir sem bregðast þarf við. Nú er unnið að því að kostnaðarmeta breytingar á húnæðinu og yfirfara á hvern hátt deild verði best komið fyrir í húsnæðinu. Fræðslunefnd leggur mikla áherslu á að flýta vinnunni þannig að áfram verði hægt að bjóða öllum börnum sem orðin eru 12 mánaða upp á leikskólavist.
8.
Velferðarvaktin - Kostnaðarþátttaka vegna skólagagna
Lögð var fyrir skýrsla Velferðarvaktarinnar, þar sem farið er yfir kostnaðarþátttöku sveitarfélaga vegna skólanámsgagna. Fyrr í sumar samþykkti sveitarfélagið Fjarðabyggð að veita öllum nemendum ókeypis námsgögn. Framkvæmdin gekk mjög vel í grunnskólum sveitarfélagsins og mikil ánægja með ákvörðunina. Lagt fram til kynningar
9.
Málefni nemenda
Fært í trúnaðarmálabók.