Fara í efni

Hafnarstjórn

333. fundur
26. janúar 2026 kl. 16:00 - 17:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Heimir Snær Gylfason formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Bryngeir Ágúst Margeirsson aðalmaður
Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður
Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir stjórnandi
Dagskrá
1.
Umsókn um Stækkun lóðar Hraun 4
Málsnúmer 2512112
Umsókn um stækkun lóðar Hraun 4, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkti fyrir sitt leyti stækkun á lóð með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísaði erindinu til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir stækkun lóðar að Hrauni 4 og vísar málinu til afgreiðslu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa.
2.
Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Málsnúmer 2510179
Lögð fram drög að útboðsgögnum fyrir dýpkun við Frystihússbryggju á Eskifirði. Stjórnanda og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.
3.
Sjóvarnir á Breiðdalsvík
Málsnúmer 2601162
Skoða þarf sjóvarnir við Selnes 3-5 á Breiðdalsvík. Haft hefur verið samband við Vegagerðina sem ber ábyrgð á að verja mannvirki fyrir ágangi sjávar. Stjórnanda hafna og hafnarstjóra falið að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni og leggja fyrir að nýju. Jafnframt er hafnarstjóra falið að vera í sambandi við lóðarhafa um málið.
4.
Þróun Mjóeyrarhafnar
Málsnúmer 2601175
Farið yfir þróun Mjóeyrarhafnar. Trúnaðarmál.
5.
Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 2501155
Farið yfir stöðuna á landmótun og landfyllingu á Mjóeyrarhöfn.
6.
Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar
Málsnúmer 2502061
Farið að nýju yfir málin varðandi hafnarsvæðið í Mjóafirði. Stjórnanda hafna og hafnarstjóra falið að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni og leggja fyrir að nýju.
7.
Erindi tollgæslu - Aðgangur að rafrænni vöktun á Eskifjarðarhöfn
Málsnúmer 2512092
Lagt fram erindi Skattsins um aðgang tollgæslu að rafrænni vöktun á tollhöfnum, hafnarsvæðum o.fl. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu og vinna að útfærslu.
8.
Erindi tollgæslu - Aðgangur að rafrænni vöktun á Reyðarfjarðarhöfn
Málsnúmer 2512098
Lagt fram erindi Skattsins um aðgang tollgæslu að rafrænni vöktun á tollhöfnum, hafnarsvæðum o.fl. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu og vinna að útfærslu.
9.
Erindi tollgæslu - Aðgangur að rafrænni vöktun á Norðfjarðarhöfn
Málsnúmer 2512099
Lagt fram erindi Skattsins um aðgang tollgæslu að rafrænni vöktun á tollhöfnum, hafnarsvæðum o.fl. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu og vinna að útfærslu.
10.
Framtíðin og íslenskar hafnir
Málsnúmer 2601116
Skýrsla Hafnasambands Íslands um framtíðarstefnu hafna lögð fram til kynningar
11.
Hafnasambandsþing 2026
Málsnúmer 2601124
Hafnasambandsþing Hafnasambands Íslands verður haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23.október 2026. Hafnarstjórn samþykkir að þingið verði sótt af fulltrúum Fjarðabyggðarhafna.
12.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
Málsnúmer 2502023
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 476., 477. og 478. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.