Fara í efni

Hafnarstjórn

334. fundur
16. febrúar 2026 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Heimir Snær Gylfason formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Ingunn Eir Andrésdóttir varamaður
Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður
Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir stjórnandi
Dagskrá
1.
Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss
Málsnúmer 2602048
Erindi frá Eimskip dags. 2. febrúar þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Heimi Karlsson, skipstjóra á Dettifossi. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.
2.
Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Málsnúmer 2510179
Lagt fyrir að nýju. Unnið er að útboðsgögnum fyrir dýpkun. Hafnarstjórn samþykkir forsendur gagna og val á útboðsleið. Stjórnanda og hafnarstjóra falinn frágangur og leggja fyrir gögn í endanlegri mynd.
3.
Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 2501155
Farið yfir stöðuna á landmótun og landfyllingu á Mjóeyrarhöfn.
4.
Eskifjarðarhöfn - stækkun
Málsnúmer 2003091
Fyrir liggur að malbika þarf Leirubakka á Eskifirði til að ljúka frágangi hafnarsvæðisins á landi. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í útboð á malbikun Leirubakka.
5.
Sjóvarnir á Breiðdalsvík
Málsnúmer 2601162
Málið lagt fyrir að nýju. Stjórnandi og fulltrúi Vegagerðarinnar hafa skoðað aðstæður við Selnes 3-5 með tilliti til sjóvarna. Hafnarstjórn samþykkir að fara í sjóvarnir til bráðabirgða í samstarfi við Vegagerðina.
6.
Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar
Málsnúmer 2502061
Lögð fram skýrsla Vegagerðarinnar um ástand ferjubryggjunnar í Mjóafirði. Stjórnanda hafna falið að vinna málið áfram og kalla eftir frekari gögnum, horft er til þess að farið verði í lagfæringar.
7.
Öryggismál hafna
Málsnúmer 2206100
Farið yfir stöðuna á úrbótum í öryggismálum Fjarðabyggðarhafna
8.
Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Málsnúmer 2507014
Um umsögn Vegagerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í ábendingu Vegagerðarinnar og vísar erindinu til umsagnar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur stjórnanda hafna að svara skipulags- og framkvæmdanefnd.
9.
Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Málsnúmer 2602047
Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megin regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar.
10.
Beiðni um umsögn v. endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers
Málsnúmer 2602013
Lögð fram til kynningar beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.
11.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 2601118
Lögð fram til kynningar fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands