Fara í efni

Hafnarstjórn

335. fundur
16. mars 2026 kl. 16:30 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Heimir Snær Gylfason formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Bryngeir Ágúst Margeirsson aðalmaður
Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður
Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Málsnúmer 2510179
Lögð fram gögn vegna fyrirhugaðs útboðs á dýpkun. Stjórnanda falið að láta lagfæra útboðsgögn út frá umræðum á fundinum.
2.
Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Málsnúmer 2502033
Fyrirspurn Loðnuvinnslunnar vegna Innri löndunarbryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra og stjórnanda hafna að afla frekari gagna og leggja fyrir að nýju.
3.
Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju
Málsnúmer 2603171
Lögð fram beiðni Loðnuvinnslunnar um uppsetningu slönguhúss og löndunarbúnaðar á Strandarbryggju, Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra að ræða við Loðnuvinnsluna um útfærslur.
4.
Hafnargata 30 Fáskrúðsfjörður
Málsnúmer 2603169
Lagt fram erindi vegna Hafnargötu 30 á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn vísar erindinu til stjórnanda hafna til úrlausnar í samstarfi við stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar.
5.
Leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða
Málsnúmer 2603112
Lagðar fram leiðbeiningar Innviðaráðuneytisins um afmörkun hafnarsvæða. Hafnarstjórn felur stjórnanda hafna að undirbúa breytingar á afmörkun hafnarsvæða Fjarðabyggðarhafna í samræmi við leiðbeiningar og leggja fyrir að nýju.
6.
Beiðni um uppsetningu á farsímabúnaði í Norðfjarðarvita
Málsnúmer 2602147
Framlagt erindi frá Mílu þar sem óskað er eftir heimild til að setja upp farsímasendi í Norðfjarðarvita til að bæta farsímasamband. Hafnarstjórn samþykkir uppsetningu farsímasendis að því gefnu að jákvæð umsögn komi frá Vegagerðinni.
7.
Umsókn um styrk til endurgerðar bryggju við Selhellu Mjóafirði
Málsnúmer 2603051
Lögð fram umsókn eigenda Selhellu í Mjóafirði um styrk til endurgerðar bryggju við húsið. Hafnarstjórn finnst framtakið gott en því miður fellur það ekki undir reglur um styrki til viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Stjórnanda hafna er falið að ræða málið við umsækjanda.
8.
Virðisaukaskattur og hringsiglingar
Málsnúmer 2602240
Lagt fram til kynningar minnisblað frá AECO.
9.
Áskorun - Verndun og aðgengi að strandlengju Íslands
Málsnúmer 2602228
Lagt fram til kynningar bréf frá Siglingasambandi Íslands.
10.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 2601118
Lögð fram til kynningar fundargerð 480.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands