Hafnarstjórn
340. fundur
4. maí 2026
kl.
16:15
-
18:15
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Heimir Snær Gylfason
formaður
Jón Björn Hákonarson
varaformaður
Bryngeir Ágúst Margeirsson
aðalmaður
Tinna Hrönn Smáradóttir
aðalmaður
Birta Sæmundsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Útboð - Vöttur, mönnun og viðhald
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að undirbúa útboð á þjónustu um mönnun og viðhald á dráttarbátnum Vetti í samstarfi við EFLU. Miðað er við að nýr samningur taki gildi frá og með áramótum. Hafnarstjórn samþykkir að framlengja núverandi samning til áramóta.
2.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Lögð fram sem trúnaðarskjal skýrsla skipulagsgreiningar EFLU á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjóra falið að undirbúa kynningarfund með hagaðilum.
3.
Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju
Beiðni Loðnuvinnslunnar um uppsetningu slönguhúss og löndunarbúnaðar lögð fram að nýju eftir breytingar á hönnun. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti uppsetningu á húsi og búnaði og vísar málinu til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar.
4.
Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Farið yfir uppfærða tímalínu á framkvæmdum Loðnuvinnslunnar með tilliti til beiðni þeirra um hækkun Innri-Löndunarbryggju. Stjórnanda hafna og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að undirbúa framkvæmdir og leggja fyrir að nýju.
5.
Ástand stálþilsbryggja - Fjarðabyggðarhafnir
Lagt fram minnisblað frá Portum verkfræðistofu um þykktarmælingu stálþila í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn samþykkir að fara í verðkönnun á þykktarmælingum til framkvæmda í sumar.
6.
Eskifjarðarhöfn - stækkun
Yfirferð á stöðu mála er varða verkefni við Leirubakka og Frystihússbryggjuna á Eskifirði. Hafnarstjóra falið að vinna áfram að verkefnum á grundvelli umræðna á fundinum.
7.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð 481.fundar Hafnasambands Íslands