Hafnarstjórn
Hafnarstjórn fagnar þeim áhuga sem er til staða á frekari uppbyggingu hafnsækinnar starfsemi og atvinnutækifæra í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn hvetur bæjarstjórn jafnframt til að vinna að málinu með hlutaðeigandi aðilum, meðal annars með það fyrir augum að sjá hvort af þessu geti orðið og eins með hvaða hætti aðkoma þess yrði að lóðamálum og gerð hafnarmannvirkja.
Bæjarráð vísaði á fundum sínum nr. 241 þann 12. apríl og 242 þann 26. apríl sl. til umsagnar hjá hafnarstjórn erindi frá Löxum ehf., dagsett 11. apríl 2011 og bréfi Skipulagsstofnunar dags. 15. apríl 2011. Óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og atvinnu- og menningarnefndar vegna tilkynningar um eldi á 6000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lögð fram tillaga að umsögn Fjarðabyggðar til skipulagsstofnunar ásamt drögum að yfirlýsingu frá Laxar ehf. Umsögnin tekin til umfjöllunar. Nefndin samþykkir umsögn og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.