Landbúnaðarnefnd
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Landbúnaðarnefnd tilnefnir Sigurð Baldursson fjallskilastjóra fyrir Fjarðabyggð. Fyrir 6. nóvember 2011 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 18.000.- pr. dagsverk. Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2011 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram sem hér segir:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar:
Norðfjarðarsvæði:
Gangnastjóri er Axel Jónason og Leifur Jónsson skal sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár, þar með talin Hólaströnd. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson og Jón Þór Aðalsteinsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár í Oddsdal og í Hellisfirði og Norðfirði.
Sunnan ár frá Ljósá í Fannardal, er lagt til að eftirtaldar jarðir leggi til gangnamenn.
ü 2 menn frá Hofi
ü 2 menn frá Þrastarlundi
ü 1 mann frá Kirkjubóli
Eskifjarðarsvæði:
Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal. Sjöfn Gunnarsdóttir umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnsdal. Fjarðabyggð leggur til 3 dagsverk í Hellisfjörð sunnan ár. Fjallskilastjóri hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Hjálpleysuá.
Reyðar-, Fáskrúðs- og Stöðvafjarðarsvæði:
Sigurður Baldursson er gangnastjóri og mun í samráði við fjallskilastjóra Fljótsdalshéraðs sjá um fjallskil á svæðinu frá Hólmahálsi að Hjálpleysuá. Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði að Stöðvarfirði munu fjáreigendur sjá um fjallskil eins og verið hefur.
Mjóifjörður:
Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri. Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði.
Gildir fyrir öll fjallskilasvæði:
Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin.
Göngur skulu fara fram á tímabilinu 17. til 25. september 2011. Seinni göngum skal lokið fyrir 17. október.
Viðurlög:
Landbúnaðarnefnd vekur athygli gangnaforingja á að viðurlög við gangnarofi eru kr. 18.000.-Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur.
Vegna 16. gr. fyrrgreindrar samþykktar gerir landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar tillögu um hvernig göngum skuli háttað á svæði norðan varnarlínu í Reyðarfirði, laugardag 17. september 2011. Verður smalað frá Hólmanesi að austan og Njörvadalsá að vestan og inn Svínadal að sveitarfélagsmörkum. Vallamenn leggja til 3 menn að austan, 2 menn að vestan. Sunnudag 18. september 2011, verður smalað frá Njörvadalsá að austan og frá varnarlínu í Hjálpleysu upp Fagradal. Vallamenn leggja til 2 menn á Sléttadal, 1 mann á Grænafell, 2 menn í Hjálpleysu og 1 mann í Fagradal austan ár.
Vegna áður greindar 16. gr. í samþykkt um Fjallskil í Múlasýslum gerir nefndin einnig tillögu að því hvernig fjallskilum skuli hátta í Stöðvafirði. Lagt er til að smalað verði helgina 17. til 18. september 2011 og að fjáreigendur í Breiðdal sjái um smölun í Stöðvardal að Kambanesi. Fjarðabyggð sér um smölun í Jafnadal út að Klifbotnum.
Landbúnaðarnefnd gefur hlutaðeigandi kost á að koma með breytingar á fyrirkomulagi og skulu þær hafa borist fyrir 9. september 2011.