Öldungaráð
27. fundur
18. maí 2026
kl.
14:00
-
16:00
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Ólafur Helgi Gunnarsson
formaður
Arndís Bára Pétursdóttir
aðalmaður
Árni Þórhallur Helgason
aðalmaður
Jórunn Bjarnadóttir
aðalmaður
Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir
aðalmaður
Þórarinn Viðfjörð Guðnason
aðalmaður
Starfsmenn
Helga Sól Birgisdóttir
ritari
Fundargerð ritaði:
Helga Sól Birgisdóttir
forstöðumaður heimaþjónustu
Dagskrá
1.
Fyrirspurn öldungaráðs vegna garðsláttarþjónustu
Öldungaráð þakkar fyrir svarið frá Sláttugenginu og felur starfsmanni að kynna sér aðra valkosti varðandi garðslátt.
2.
Tillaga um fjölgun fulltrúa eldra fólks í öldungaráði og kjörtímabil þeirra
Fulltrúar öldungaráðs samþykkja tillögu að fjölga fulltrúum eldra fólks í ráðinu úr þremur í fimm eða fleiri og fjölga varafulltrúum til samræmis. Talið er að það styrki samráð og upplýsingaflæði milli öldungaráðs og eldri íbúa sveitarfélagsins, þannig að tryggð verði sem best þátttaka og samfella í störfum ráðsins. Fulltrúar samþykkja einnig tillögu að skýrari ákvæði um kjörtímabil fulltrúa þar sem það kemur ekki fram í gildandi reglum eða erindisbréfi ráðsins.
3.
Starfsáætlun öldungaráðs
Starfsáætlun rýnd og farið yfir verkefnastöðu.
4.
Kynning á fyrirkomulagi námskeiða fyrir eldra fólk
Fulltrúar ráðsins þakka Hrafnhildi fyrir samtalið og fagna því að sveitarfélagið ætli að auka félags- og tómstundarstarf eldra fólks í samstarfi við Janusar verkefnið, félög eldra fólks og öldungaráð.