Fara í efni

Öldungaráð

3. fundur
4. febrúar 2020 kl. 10:00 - 12:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir embættismaður
Jórunn Bjarnadóttir embættismaður
Sigurður Stefán Baldvinsson embættismaður
Ingigerður Jónsdóttir embættismaður
Maren Sigurlaug Ármannsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Lilja Magnúsdóttir Verkefni Búsetuþjónustu
Dagskrá
1.
Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði
Málsnúmer 1806076
Framlagt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. júní 2018 um ný og breytt ákvæði um notendaráð á grundvelli laga sem tóku gildi 1. október 2018. Kynnt fyrir Öldungaráði.
2.
Framtíðarþing um farsæla öldrun - Beiðni um styrk
Málsnúmer 1908055
Beiðni frá Félagi eldri borgara á Fljótsdalshéraði um styrk til að halda málþing um farsæla öldrun í samvinnu við Landssamband eldri borgara og Öldrunarráð var tekin fyrir á 124. fundi félagsmálanefndar 20. ágúst 2019. Samþykktur var 100.000 kr. styrkur og eldri borgarar í Fjarðabyggð hvattir til þátttöku. Vísað til kynningar í Öldungaráði Fjarðabyggðar. Kynnt í Öldungaráði.
3.
Starfsáætlun öldungaráðs 2020
Málsnúmer 1912104
Rætt um hvað Öldrunarráð er, hverjir eru aðilar og hvort Fjarðabyggð ætti að vera aðili að Öldrunarráði. Einar Már og Dýrunn ætla að taka að sér að skoða þetta fyrir hönd Öldungaráðs. Starfsáætlun Öldungaráðs rædd og bent á mikilvægi þess að tryggja tengsl milli félaga eldri borgara í Fjarðabyggð.

Tillaga Einars Más um að öll félögin taki út sitt húsnæði. Framkvæmdasvið er í vinnu við að taka allt húsnæði Fjarðabyggðar út en þarfir notenda húsnæðisins gætu verið aðrar en það sem framkvæmdasvið mun leggja til. Hvert félag fór í stuttu máli yfir starf félagsins, tengingar á milli félaga ræddar, ásamt mikilvægi samtarfs og tengingu hvers félags við grunnskólana á hverjum stað auk möguleikanna á að tengjast frekari böndum í anda Place-ee verkefnisins. Rætt um svarbréf sem sent var til sviðsstjóra fjölskyldusviðs sem svar við pósti sem sendur var eldri borgara félögunum um snjómokstur. Svarbréfið snýr að gjaldskrá og verði á þjónustunni. Guðrún Pétursdóttir frá HSA kynnti nýtt verkefni sem er í startholunum um Heilsueflandi móttöku fyrir eldri borgara í Fjarðabyggð og hvernig sú þjónusta verður mögulega útfærð. Guðrún Lilja kynnti Place-EE verkefnið lítillega, hvað væri búið að gera og hvað væri næst á dagskrá í verkefninu. Hún lagði einnig til að farið yrði í heimsókn til allra félaganna þar sem verkefnið yrði kynnt og hugmyndir sem kviknað hafa. Guðrún Lilja kynnti einnig lítillega þá hugmynd að Fjarðabyggð myndi gerast þátttakandi í samstarfi Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um aldursvænar borgir og aldursvæn samfélög og tilheyra heimsneti aldursvænna borga og samfélaga. Guðrún var beðin um að skrifa minnisblað um hugmyndina til þess að leggja fyrir á næsta fundi. Beðið um kynningu á Janusarverkefninu á næsta fundi en verkefnið á að fara í gang á þessu starfsári.