Skipulags- og framkvæmdanefnd
50. fundur
28. janúar 2026
kl.
16:30
-
19:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Ívar Dan Arnarson
varamaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Óveruleg deiliskipulagsbreyting Brekkugerði 1
Óveruleg deiliskipulagsbreyting Brekkugerði 1. Breytingin tekur til lóðar við Brekkugerði 1, lóðin er stækkuð til austurs og fer úr því að vera 859,1m² í 1.154 m². Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
2.
Kvíabrekka 2 óveruleg breyting á deiliskipulagi
Kvíabrekka 2 óveruleg breyting á deiliskipulagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
3.
Deiliskipulag Nes- og Bakkagil Norðfirði
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Ofanflóðvarna á Norðfirði vegna fjölskyldusvæðis. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða breytingu og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir Víðimýri 17, Hrafnsmýri 1-3-5-6, Starmýri 15-17-19-21-23.
4.
Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður
Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni með fyrirvara um að nýtt deiliskipulag verði samþykkt og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráð.
5.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.
6.
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
7.
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
8.
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl03
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl03. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
9.
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
Umsókn um stækkun til vesturs um 3 metra. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu og felur sviðsstjóra að ræða við umsækjanda.
10.
Refa- minkaveiði 2026
Umræða um fyrirkomulag n.k. samningstímabils og framlögð fundargerð með refaskyttum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
11.
Umsókn um lóð undir Naddoð
Umsókn um lóð undir Naddoð. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með umsækjendum.
12.
Styrkir til fráveituframkvæmda 2026
Auglýst eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að sækja um í samræmi við umræður á fundinum.
13.
Greinargerð um framkvæmdir ársins
Sviðstjóri skipulags- og framkvæmdasvið gerir grein fyrir niðurstöðu framkvæmda ársins 2025 og áætlunum næsta árs. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
14.
Byggingarleyfi Búðarmelur 31
Umsókn um byggingarleyfi við Búðarmel 31, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um byggingarleyfi í ljósi þess að viðkomandi framkvæmd fellur ekki að deiliskipulagi.
15.
Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun
Beiðni Búðinga ehf. að breyta notkun Strangötu 39, 735 Eskifirði í starfsmannahús til tveggja ára. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum skipulags- og framkvæmdasviðs að kanna málið frekar.
16.
Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði
Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna stækkunina við Strandgötu 4 og 8 og Ásgarð 3 og 5.