Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

51. fundur
11. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Elís Pétur Elísson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Málsnúmer 2507014
Um umsögn Vegagerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í ábendingu Vegagerðarinnar og vísar erindinu til umsagnar í hafnarstjórn.
2.
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Málsnúmer 2302213
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
3.
Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði
Málsnúmer 2601220
Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun á lóð. Stækkunin er ekki talin hafa grenndaráhrif. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
4.
Framkvæmdaleyfi vegna strenglaganar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði
Málsnúmer 2410177
Endurnýju á framkvæmdaleyfi. Ekki var farið í verkið á síðasta ári vegna ófyrirséðs kostnaðar í öðrum verkum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir endurnýjun á framkvæmdaleyfi.
5.
Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Málsnúmer 2601258
Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
6.
Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Málsnúmer 2601178
Tillaga að umsóknum í fiskeldissjóð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögurnar og felur sviðstjóra að senda inn umsókn.
7.
Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun
Málsnúmer 2601008
Beiðni Búðinga ehf. að breyta notkun Strangötu 39, 735 Eskifirði í starfsmannahús til tveggja ára. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytta notkun að Strandgötu 39, 735 Eskifirði til 1. júlí 2027 og felur byggingarfulltrúa að fara í úttekt á mannvirkinu.
8.
Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði
Málsnúmer 2309068
Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að vera í sambandi við Vegagerðina.