Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

52. fundur
25. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Elís Pétur Elísson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Breyting á aðalskipulagi reitur AT-301
Málsnúmer 2510090
Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggaðar 2020-2040 sem veitir takmarkaða heimild til búsetu á reit AT-301 á Reyðarfirði. Tillagan var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gefinn frestur til 18. febrúar til að skila inn athugasemdum. Þrjár umsagnir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar málinu aftur til skipulagsfulltrúa og felur honum að bregðast við umsögnum er varða skilmála samkvæmt umræðum á fundinum og leggja fyrir.
2.
Breyting á aðalskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2509106
Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggaðar 2020-2040 vegna íbúðarbyggðar við Búðareyri 12, Reyðarfirði. Tillagan var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gefinn frestur til 18. febrúar til að skila inn athugasemdum. Umsagnir bárust frá HAUST og Vegagerðinni sem fólu ekki í sér efnislegar athugasemdir. Skipulags og framkvæmdanefnd telur ekki vera tilefni til breytinga á tillögunni og henni vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði
Málsnúmer 2401199
Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggaðar 2020-2040 vegna tjaldsvæðis og íbúðarbyggðar á Eskifirði. Tillagan var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gefinn frestur til 18. febrúar til að skila inn athugasemdum. Nokkrar umsagnir bárust sem fólu ekki í sér efnislegar athugasemdir. Skipulags og framkvæmdarnefnd telur ekki vera tilefni til breytinga á tillögunni og er henni vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4.
Byggingarleyfi Hamarsgata 15
Málsnúmer 2602185
Umsókn um byggingarleyfi við Hamarsgötu 15, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um byggingu á tveggja hæða einbýlishúsi með bílskúr. Á lóðinni er þegar fyrir tveggja hæða einbýli og telur nefndin að framkvæmdin fari yfir hóflegt nýtingarhlutfall.
5.
Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar
Málsnúmer 2601172
Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3, Sólbakki 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarstjórn.
6.
Hreindýraarður - Stöðvarfirði
Málsnúmer 2601254
Hreindýraarður - Stöðvarfirði. Skipulags-og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vera í sambandi við bréfritara.
7.
Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði
Málsnúmer 2602154
Umsókn um lóð við Strandgötu 28, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu til bæjarráðs.
8.
Framkvæmdaleyfi mön við tjaldsvæði Reyðarfirði
Málsnúmer 2602121
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gerð skjólgarða á tjaldsvæðinu á Reyðarfirði til að brjóta upp vind og brjóta upp opin svæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Nefndin ítrekar að mikilvægt sé að umsóknaraðili sjái til þess að frágangur verði kláraður fyrir sumarið. Frágangur skal vera í samráði við stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar.
9.
Framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi
Málsnúmer 2601202
Framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
10.
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
Málsnúmer 2107078
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd fer fram á að sett verði kvöð um lagnaleið á stækkkunina og vísar erindinu til skipulagsfulltrúa og leggja fyrir nefnd að nýju.
11.
Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Málsnúmer 2602047
Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megin regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að koma með tillögur fyrir næsta fund.
12.
Merking á íþróttahús
Málsnúmer 2602142
Ósk um að setja merkingu á íþróttahús. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið. Húsnæði sveitarfélagsins sem hýsir stofnanir og er í eigu þess eru merktar með skjaldamerki Fjarðabyggðar og heiti stofnunar. Viðmið sveitarfélagsins er að eignir þess séu ekki merktar öðrum aðilum eða félögum og getur nefndin því ekki orðið við beiðninni.
13.
Lóð frystihús Breiðdalsvík brunnar og frágangur
Málsnúmer 2602124
Lóð frystihús Breiðdalsvík brunnar og frágangur. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að ráðst í úrbætur á málinu.
14.
Hvíldarbekk með áletruðum skildi
Málsnúmer 2602101
Hvíldarbekk með áletruðum skildi. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
15.
Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður
Málsnúmer 2602176
Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
16.
Snómokstur Fjarðabyggðar 2026
Málsnúmer 2602197
Kynning á fyrirkomulagi snjómoksturs í Fjarðabyggð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
17.
Kynding sundlaugar í Neskaupstað
Málsnúmer 2602196
Lagt fram erindi Parut ehf varðandi uppsetningu á varmadælum fyrir sundlaugina í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
18.
Fjárfestingar framkvæmdasviðs 2026
Málsnúmer 2602194
Lögð fram tillaga að verkum í verðkannanir og útboð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.
19.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
Málsnúmer 2602149
Fundargerð 189. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur undir bókanir um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og frumvarp til laga til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.