Skipulags- og framkvæmdanefnd
54. fundur
9. mars 2026
kl.
16:00
-
17:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Elís Pétur Elísson
aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 3-5 Fáskrúðsfirði
Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 3-5 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til samþykktar í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
2.
Breyting á aðalskipulagi reitur AT-301
Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna íbúðarbyggðar á athafnasvæði AT-301 á Reyðarfirði. Tillagan var auglýst og hefur verið breytt í samræmi við bókun á 52. fundi skipulags- og framkvæmdanefndar vegna innsendra athugasemda. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar tillögunni með áorðnum breytingum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Byggingarleyfi Hraun 2, breytingar inni
Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum inni við Hraun 2 (slökkvistöð). Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu og starfsmönnum sviðsins falið að vinna málið áfram.
4.
Byggingarleyfi Hafnargata 15, 750 Fáskrúðsfjörður
Umsókn um byggingarleyfi Hafnargata 15, 750 Fáskrúðsfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
5.
Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði
Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingu á lóð og vísar erindinu í bæjarráð.
6.
Grenndarkynning Strandgata 28
Grenndarkynning Strandgata 28, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir íbúum Strandgötu 26 og 30.
7.
Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði
Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði. Athugasemdir grenndarkynningar kynntar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfullrúa að uppfæra lóðamörk miðað við umræður á fundinum og leggja fyrir fund að nýju.
8.
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkun og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráð.
9.
Framkvæmdaleyfi efnistaka Hrafnagil
Framkvæmdaleyfi efnistaka Hrafnagil. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
10.
Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Bleiksárfoss
Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Bleiksárfoss. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áformin og fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
11.
Nýting æðarvarps í landi Hólma
Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við beiðni um framlengingu afnota af æðarvarpi. Stefna sveitarfélagsins er að bjóða út hlunnindi sem þessi til áhugasamra aðila til nýtingu þeirra að loknum samningstíma.
12.
Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld.
Sviðstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um aðstöðu og áhöld tengd íþróttahúsi Reyðafjarðar sem þarf að laga til að húsið nýtist sem best. Málinu vísað áfram til skipulags og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir fund að nýju.