Skipulags- og framkvæmdanefnd
55. fundur
19. mars 2026
kl.
16:30
-
17:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Elís Pétur Elísson
aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Grenndarkynning Strandgata 28, 740 Norðfirði
Niðurstaða grenndarkynningar v. Strandgötu 28, 740 Norðfirði. Engar athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
2.
Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði
Niðurstaða grenndarkynningar v. framkvæmda við Strandgötu 6. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og felur skipulagsfulltrúa að svara athugasemdum. Nefndin vísar grenndarkynningu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar henni í bæjarráð.
4.
Deiliskipulag Nes- og Bakkagil Norðfirði
Niðurstaða grenndarkynningar v. óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Nes- og Bakkagil Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að svara athugasemdum og vísar erindinu í bæjarstjórn til staðfestingar.
5.
Byggingarleyfi Strandgata 28, 740 Norðfirði
Umsókn um byggingarleyfi fyrir Strandgötu 28, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
6.
Byggingarleyfi Strandgata 6, 740 Norðfjörður
Umsókn um byggingarleyfi fyrir Strandgötu 6, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
7.
Grenndarstöðvar.
Lögð fram útfærsla og staðsetningar á grenndarstöðvum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir uppsetningu á grenndarstöðvum og felur starfsfólki sviðsins að vinna málið áfram.
8.
Samráðsfundur um almenningssamgöngur á austurlandi
Lögð fram kynning og fundargerð frá samráðsfundi um almenningssamgöngur á austurlandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
9.
Framkvæmdaleyfi sjóvörn Selnes 3-5
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir grjótvörn við Selnes 3-5. Skipulags- og framkvæmdaleyfi felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
10.
Framkvæmdaleyfi - Norðfjarðaá flugvallarendi
Framkvæmdaleyfi - Norðfjarðaá flugvallarendi. Skipulags- og framkvæmdaleyfi felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.