Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

58. fundur
29. apríl 2026 kl. 16:00 - 17:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Sigurjón Rúnarsson varamaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Holtahverfi, Reyðarfirði - Garðaholt 5
Málsnúmer 2604187
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Holtahverfi, Fáskrúðsfirði - Garðaholt 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Garðaholti 3, 6, 7, 8a og 8b.
2.
Byggingarleyfi Hafnarbraut 6, 740 Norðfirði
Málsnúmer 2602170
Byggingarleyfi Hafnarbraut 6, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3.
Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - niðurrif
Málsnúmer 2604162
Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - niðurrif. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugað niðurrif og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
4.
Framkvæmdaleyfi hjólabraut
Málsnúmer 2604161
Framkvæmdaleyfi hjólabraut. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir Hrafnsmýri 5 og 6, Valsmýri 5 og 6, Gauksmýri 5 og 6 og Nesbakki 21 og leggja niðurstöður grenndarkynningar fyrir fund að nýju.
5.
Umsókn um lóð Mógerði 5
Málsnúmer 2604084
Umsókn um lóð Mógerði 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi þar sem byggingarreitur verði rýmkaður og nýtingarhlutfall aukið til að rúma hús af þeirri stærð sem óskað er eftir.
6.
Framkvæmdaleyfi girðing Blávík
Málsnúmer 2604110
Framkvæmdaleyfi girðing Blávík. Skipulags- og framkvæmdanefd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
7.
Framkvæmdaleyfi skógrækt Blávík
Málsnúmer 2604111
Framkvæmdaleyfi skógrækt Blávík. Skipulags- og framkvæmdanefd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
8.
Grjótá, lóðir og merkjalýsing
Málsnúmer 2502232
Grjótá, lóðir og merkjalýsing. Kynning á stöðu verkefnis. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
9.
Umsókn um beitiland - Eigendur Fálskaskjóls Kirkjubólseyrum 12 740 Nesk
Málsnúmer 2604155
Umsókn eigenda Fákaskjóls ehf Kirkjubólseyrum 12, 740 Neskaupstað um beitiland fyrir 12 hesta. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
10.
Vor í Fjarðabyggð 2026
Málsnúmer 2604186
Kynning á Vor í Fjarðabyggð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna málið áfram.
11.
Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði
Málsnúmer 2505129
Vísað frá starfshóp um íþróttahús á Eskifirði til skipulags- og framkvæmdanefndar vinnu við skoðun á deiliskipulagi Dals þar sem gert er ráð fyrir íþróttahúsinu og rúmu svæði þar í kring. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að leggja fyrir tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir nefndina að nýju.
12.
Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Málsnúmer 2510022
Niðurstöður verðkönnunar vegna endurnýjunar á þaki Grunnskóla Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti tilboðið en vísar því til endanlegrar staðfestingar í bæjarráði.
13.
Framkvæmdaleyfi efnistaka Norðfjarðará
Málsnúmer 2604191
Framkvæmdaleyfi efnistaka Norðfjarðará. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.