Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

59. fundur
13. maí 2026 kl. 13:30 - 15:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Elís Pétur Elísson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 2
Málsnúmer 2512025
Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Stöðvarfirði þar sem lóðin Sævarendi 2 bætist við skipulagssvæðið. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
2.
Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Málsnúmer 2507014
Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir Sævarenda á Stöðvarfirði þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda sem fram komu við kynningu á vinnslutillögu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
3.
Umsókn um lóð Mógerði 5
Málsnúmer 2604084
Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Bakkagerði 1 sem varðar lóðina Mógerði 5 þar sem byggingarreitur er stækkaður og nýtingarhlutfall lóðarinnar er aukið. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir Mógerði 1,2 og 4 og leggja fyrir fund að nýju.
4.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Málsnúmer 2604188
Ósk frá Rarik um endurnýjun á lóðarleigusamning og stækkun á lóð, Hjallaleiru 9 RF. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að skoða hvort hægt sé að stækka lóðina m.t.t breytingar á skipulagi.
5.
Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 77b, 735 Eskifjörður
Málsnúmer 2604068
Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 77b, 735 Eskifjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir óverulegum breytingum á deiliskipulagi og leggja fyrir fund að nýju.
6.
Framkvæmdaleyfi strenglöng í Hólsgötu og Miðstræti
Málsnúmer 2604221
Framkvæmdaleyfi strenglöng í Hólsgötu og Miðstræti. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum gögnum hefur verið skilað.
7.
Byggingarleyfi Efri miðbær 3 geymsluhús
Málsnúmer 2604219
Byggingarleyfi Efri miðbær 3 geymsluhús. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Ekki er þörf á grenndarkynningu.
8.
Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls N1
Málsnúmer 2605029
Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls N1. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllu tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
9.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Stekkir 1, Reyðarfirði - Stekkjarbrekka 15
Málsnúmer 2603135
Fyrir liggur óveruleg breyting á deiliskipulagi til að færa það til samræmis við breytta lóðastærð sem þegar hefur verið gerð og samþykkt og leiðrétting á byggingarreit í leiðinni. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu og vísar erindinu í bæjarstjórn.
10.
Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju
Málsnúmer 2603171
Beiðni Loðnuvinnslunnar um uppsetningu slönguhúss og löndunarbúnaðar lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti uppsetningu á húsi og búnaði og vísar málinu til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og samþykkir uppsetningu á húsi og búnaði. Skipulagsfulltrúa falið að ganga frá útfærslu á fyrirkomulagi lóðar.
11.
Baðstofan í Kvíabólsfjörunni
Málsnúmer 2605049
Bréf frá framkvæmdahóp lagt fram, óskað eftir styrk við verkefnið Baðstofan í Kvíabólsfjöru. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við beiðninni.
12.
Yfirborðsvatn. Erindi vegna Egilsbrautar 4
Málsnúmer 2605071
Lögð fram ósk um úrbætur á halla afleggjara af Egilsbraut niður á bæjarbryggjuna. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að skoða málið með bréfritara.
13.
Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026
Málsnúmer 2510021
Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en styrkur fékkst til framkvæmda við Bleiksárfoss. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
14.
Viðhald tækja og búnaðar í Oddskarði
Málsnúmer 2605080
Farið yfir rekstur á tækjum tækjamiðstöðvar í Oddskarði. Fyrirséð er að reksturinn fer fram úr áætlun vegna viðhalds á tækjum og búnaði skíðamiðstöðvarinnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar málinu til umfjöllunar í bæjarráði.
15.
Ástandsskoðun brúa við Búðaveg Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2605079
Farið yfir ástand brúa á Búðavegi Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að lokað verði fyrir akandi umferð tímabundið frá Búðavegi 24 að Búðavegi 18 af varúðarráðsstöfunum samkvæmt úttekt og tillögu Eflu verkfræðistofu.
16.
Umhverfismál og umbætur
Málsnúmer 2604182
Fulltrúar frá skipulags-og framkvæmdasviði kíktu á fund ungmennaráðs til að ræða ýmis mál í umhverfi Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
17.
Beiðni um fund vegna aðstöðu við reiðhöll og samgangna
Málsnúmer 2601028
Beiðni um fund vegna aðstöðu við reiðhöll og samgangna. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna málið áfram.
18.
Umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2605100
Umsókn um stöðuleyfi við Leikskólann Dalborg Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.
19.
Byggingarleyfi Leirubakki 4
Málsnúmer 2605090
Byggingarleyfi Leirubakki 4. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.
20.
Byggingarleyfi Hæðargerði 39
Málsnúmer 2605061
Byggingarleyfi Hæðargerði 39. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.
21.
Framkvæmdaleyfi færa farg Leirubakki 4
Málsnúmer 2605098
Eskja er að undirbúa byggingu 2. áfanga frystigeymslu á lóðinni Leirubakka 4 á Eskifirði sunnan við núverandi frystigeymslu. Sótt eru um framkvæmdaleyfi fyrir því að færa núverandi farg innar á lóð eins og sýnt er á teikningu -1-1-11-01. Núverandi farg er sunnan við núverandi frystigeymslu félagsins. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að farg verði sett á lóðina. Skilyrt er að hæðir á lóðarmörkum nágrannalóða og vega verði mældar og skráðar þegar búið verður að malbika vegi og lóðir og svo með reglulegum hætti á meðan farg er á lóðinni.
22.
Grenndarkynning - Garðaholt 5
Málsnúmer 2604237
Niðurstöður grenndarkynningar vegna Garðaholts 5, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og vísar erindinu í til afgreiðslu í bæjarstjórn.