Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

61. fundur
23. júní 2026 kl. 16:15 - 18:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Hafþór Eiríksson aðalmaður
Sóley Katrín Heiðarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Málsnúmer 2604231
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar sem öll gögn lágu ekki fyrir.
2.
Deiliskipulag Leiru 1 Leirubakki 4 óveruleg breyting
Málsnúmer 2605211
Fyrir liggur beiðni frá Eskju um óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem leyfileg hámarksvegghæð á langhliðum byggingar er hækkuð úr 15 metrum í 16 metra. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og telur hana ekki hafa grenndaráhrif. Málinu er til bæjarstjórnar.
3.
Grenndarkynning - hjólabraut ofan Mýrahverfið í Neskaupstað
Málsnúmer 2605020
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd staðfestir fyrir sitt leyti niðurstöðu grenndarkynningar og vísar málinu til bæjarstjórnar.
4.
Byggingarleyfi Bakkagerði 11, 730 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2606155
Umsókn um byggingarleyfi fyrir 8 íbúða fjölbýlishús við Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
5.
Framkvæmdaleyfi efnistaka Dalsá, 751 Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2606151
Framkvæmdaleyfi efnistaka Dalsá, 751 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til frekari gögnum hefur verið skilað.
6.
Bygging vatnsaflsvirkjunarinnar Fannardalsvirkjun
Málsnúmer 2606092
Kynning á fyrirhugaðri virkjun í Fannardal, 741 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og telur eðlilegt að framkvæmdaraðili vinni næst tilkynningu og greinargerð vegna tilkynningarskyldrar framkvæmdar samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þegar niðurstöður þeirrar vinnu liggja fyrir verður hægt að taka afstöðu til nauðsynlegra breytinga á aðalskipulagi og gerðar deiliskipulags vegna framkvæmdarinnar.
7.
Greinargerð um framkvæmdir ársins
Málsnúmer 2604093
Farið yfir helstu framkvæmdir ársins 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar ítarlega kynningu.
8.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Vísað frá bæjarráði til nefnda og sviða Fjarðabyggðar endurskoðaðri tillögu að skipulagi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 ásamt dagsetningum í ferlinu og felur þeim að hefja vinnu við áætlunargerðina til samræmis við sett tímamörk.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Málsnúmer 2606170
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2027. Til umræðu. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.
10.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Undirnefndir kosnar af höfuðnefndum og bæjarráði. Fjallskilanefnd Skipulags- og framkvæmdanefnd kýs fimm fulltrúar og jafn margir til vara í fjallskilanefnd. Fjallskilanefnd er skipulags- og framkvæmdanefnd til ráðuneytis um fjallskil og afréttarmál. Hún skal fjalla um fjallskil og afréttarmál í umboði skipulags- og framkvæmdanefndar. Fundargerðir fjallskilanefndar skulu lagðar fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til eftirfarandi nefndarmenn:

Aðalmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Steinn Björnsson
Guðný Harðardóttir
Sunna Júlía Þórðardóttir
Marsibil Erlendsdóttir

Varamenn
Arnór Ari Sigurðsson
Arnar Ingi Ármannsson
Þórhalla Ágústsdóttir
Gróa Jóhannsdóttir
Óðinn Logi Þórisson
11.
Framkvæmdaleyfi hjólabraut
Málsnúmer 2604161
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir hjólabraut. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.