Skipulags- og framkvæmdanefnd
62. fundur
3. júlí 2026
kl.
12:00
-
14:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Stefán Þór Eysteinsson
varamaður
Bryngeir Ágúst Margeirsson
varamaður
Sóley Katrín Heiðarsdóttir
varamaður
Guðröður Hákonarson
varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Tekin framhaldsumræða um starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd áréttar að umrætt minnisblað er vinnuskjal sem ætlað er að leggja grunn að áframhaldandi vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2027. Markmið umræðunnar er að kalla fram ábendingar og sjónarmið nefndarmanna sem unnið verður með milli funda áður en endanleg tillaga verður lögð fram. Í því ljósi telur nefndin ekki tilefni til að draga ályktanir um efni eða umfang áætlunarinnar á þessu stigi málsins. Stefnt er að því að leggja lokaútgáfu starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir nefndina 10. júlí 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram milli funda í samræmi við umræður á fundinum.
Bókun fulltrúa Miðflokks:
Bókun vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2027
Ég, undirritaður Guðröður Hákonarson, vil koma eftirfarandi athugasemdum við minnisblað þessa liðar þar sem vantar allar tölulegar upplýsingar um fjármagn inn í verkefnið. Tel ég einnig að í minnisblaðinu vanti veigamiklar upplýsingar er varða ákveðna liði og vil ég tilgreina eftirfarandi:
Skipulagsmál: Í kaflanum vantar að takast á við þann vanda sem lóðaskortur á Neskaupstað er og hvernig brugðist verður við honum; hvort sem þurfi að fara í landfyllingar eða finna nýtt svæði utan þess hefðbundna þéttbýliskjarna sem þar er.
Gatnakerfi: Það vantar ítarlegar upplýsingar um ástand gatna og viðhaldsþörf næstu fjögur árin, sem og vegna gangstétta. Þær upplýsingar þurfa að liggja fyrir svo hægt sé að ákveða hvernig unnið verður áfram með málið til lengri tíma.
Umhverfismál: Í kaflann vantar hvernig bregðast eigi við þeirri miklu fjölgun ferðamanna sem verður við Klifbrekkufossa í Mjóafirði, en fossarnir eru helsti segull ferðaþjónustu í Fjarðabyggð. Þarna vantar bæði bílastæði og göngustíg til að tryggja öryggi ferðamannanna og annarra gesta, sem er grundvallar skilyrði þess að fá úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Atvinnumál: Í kaflann vantar hvernig Fjarðabyggð ætlar að stuðla að aukinni ferðaþjónustu í sveitarfélaginu, meðal annars varðandi markaðssetningu svæðisins, ákvörðun um að bjóða skemmtiferðaskip velkomin og gerð áætlunar um hvernig vinna skuli að þessu máli - enda lögðu allir flokkar í síðustu sveitarstjórnarkosningum áherslu á að auka ferðaþjónustu á svæðinu.

2.
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði vegna nýs íþróttahúss á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd að undanskildum fulltrúa Miðflokks samþykkir að auglýsa skipulagstillöguna og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna.
Bókun fulltrúa Miðflokks:
Ég undirritaður, Guðröður Hákonarson, vil gera grein fyrir atkvæði mínu.
Ég greiði atkvæði gegn tillögunni þar sem ég tel að hér sé ekki um venjulega deiliskipulagsbreytingu að ræða. Í textanum felst í raun forhönnun á mannvirki með bindandi skilyrðum er varða útlit og ásýnd, og tel ég að alla pólítíska umræðu og ákvörðun vanti á þessu stigi málsins. Ég er hinsvega sammála fyrrihluta tillögunar sem snýr að venjulegu deiliskipulagi.