Skipulags- og framkvæmdanefnd
64. fundur
21. júlí 2026
kl.
15:00
-
17:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
aðalmaður
Hafþór Eiríksson
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Svanur Freyr Árnason
sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Farið yfir stöðuna á þakviðgerðum á Grunnskólanum á Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
2.
Ósk um leyfi til að mála mynd á vegg Ljósárvirkjunar
Ósk um leyfi til að mála mynd á vegg Ljósárvirkjunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið en óskar eftir að fá endanlega útfærslu á listverkinu áður en verkið er unnið.
3.
Aðkoma að Tröllavegi í Neskaupastað
Bréf frá íbúa um aðkomu að Tröllavegi frá Hafnarbraut og Strandgötu í Neskaupstað lagt fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að láta framkvæma aksturferlagreiningu og leggja niðurstöður greiningarinnar fyrir fund að nýju.
4.
Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar hönnun ofanflóðamannvirkja vegna Grjótár á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða hönnun og vísar henni til deiliskipulagsgerðar útkaupstaðar á Eskifirði.
5.
Deiliskipulag Grjótá og Miðbær Eskifjarðar
Deiliskipulag Grjótá og Miðbær Eskifjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar tillögunni til áframhaldandi vinnu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa og að tillagan verði lögð fyrir nefndina að nýju til auglýsingar.
6.
Framkvæmdaleyfi efnistaka Melur utan vegar við Hrafná
Framkvæmdaleyfi efnistaka Melur utan vegar við Hrafná. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
7.
Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði
Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Holtahverfi sem varðar lóðina Gilsholt 2 þar sem byggingarreitur er stækkaður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir Gilsholti 1 og 4 og leggja fyrir fund að nýju.
8.
Brekkugata jarðvinna og lagnir - Verðkönnun
Lagðar fram niðurstöður verðkönnunar vegna jarðvinnu og lagna vegna Brekkugötu á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir niðurstöður verðkönnunar og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ganga frá samningi við Dal-björg og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
9.
Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar
Kynning á stöðu hönnunar á loftræstikerfi Fjarðarbyggðarhallarinnar. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar kynninguna.