Sundlaug Eskifjarðar er lokuð vegna viðhalds, stefnt er að opna aftur 27. ágúst. 

Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

66. fundur
13. ágúst 2026 kl. 15:00 - 17:12
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Sigurjón Andrés Jónasson varamaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson varamaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson aðalmaður
Hafþór Eiríksson aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Málsnúmer 2510022
Farið yfir stöðu verkefnisins og tillögur að áframhaldandi viðhalds vinnu.
2.
Stekkjargata - Torg og garðsvæði við Egilsbúð
Málsnúmer 2607162
Lögð fram tillaga hönnun vestan við Egilsbúð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir hönnunina og felur sviðsstjóra að koma með kostnaðaráætlun fyrir verkið á fund að nýju.
3.
Verkefni tengd framkvæmd Rarik í Miðstræti og Hafnargötu Nesk
Málsnúmer 2608050
Farið yfir ýmis verkefni tengt framkvæmd Rarik í miðbænum í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir við þrengingu á Miðstræti og breikkun gangstéttar.
4.
Tjaldsvæði Norðfjörður - hönnun og framkvæmdir
Málsnúmer 2506139
Staða framkvæmda við nýtt tjaldsvæði í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
5.
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði
Málsnúmer 2608008
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda.
6.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 10 Neskaupstað
Málsnúmer 2607038
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 10 Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um breytingu á aðgengi og afmörkun sérafnota við Miðstræti 10.
7.
Framkvæmdaleyfi - malarvinnsla
Málsnúmer 2607167
Umsókn um frakmvæmdaleyfi vegna malarvinnslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir efnistökuna og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
8.
Lögreglusamþykkt
Málsnúmer 2607120
Bæjarráð vísar lögreglusamþykkt sveitarfélagsins til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra og sjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
9.
Umferðarsamþykkt
Málsnúmer 2504048
Bæjarráð vísar umferðarsamþykkt sveitarfélagsins til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
10.
Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Málsnúmer 2608038
Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið.
11.
Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita - Jarðhiti jafnar leikinn -
Málsnúmer 2503223
Farið yfir stöðu jarðhitaleitar á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
12.
Aðkoma að Tröllavegi í Neskaupastað
Málsnúmer 2606171
Lagt fram minnisblað COWI vegna akstursgreiningar á gatnamótum Tröllavegur - Strandgata. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.