Fara í efni

Stjórn menningarstofu

31. fundur
9. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson formaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm varaformaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Framlögð niðurstaða verðkönnunar vegna uppsteypu sökkla, platna og veggja í I. áfanga Íslenska stríðsárasafnsins.
Stjórn samþykkir að tilboði lægstbjóðanda verði tekið, Launafl ehf. sem var undir kostnaðaráætlun. Stjórn leggur áherslu á að tímamörk verkþáttarins standi en þau eru í maí 2026. Vísað áfram til bæjarráðs.
2.
Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk
Málsnúmer 2601050
Lögð fram tillaga að uppfærðum reglum um listaverk og listamann Fjarðabyggðar.
Stjórn samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni og bæjarritara að uppfæra þær til samræmis við umræður á fundinum og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs.
3.
Reglur um menningarstyrki
Málsnúmer 2602064
Fjallað um reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag þeirra en styrkveitingar tvöfaldast á milli ára. Framlögð drög að reglum.
Stjórn lýst vel á reglurnar og felur forstöðumanni og bæjarritara að uppfæra þær til samræmis við umræður á fundinum. Vísað til næsta fundar stjórnar.
Viðhengi
Minnisblað -
4.
Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2211009
Fjallað um endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar.
Stjórn samþykkir tillögur að verklagi við endurskoðun menningarstefnunnar. Forstöðumaður leiðir verkefnið og leggur fyrir stjórn upplýsingar um framgang vinnunnar.
5.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Farið yfir verkefni menningarstofu á komandi ári, lista- og menningarhátiðina innsævi og áherslur í menningarstarfi.
Stjórn fór yfir verkefnin.
6.
Umsóknir í Safnasjóð 2025
Málsnúmer 2510141
Framlagðar niðurstöður úthlutunar safnasjóðs úr aðalúthlutun fyrir árið 2026. Öndvegisstyrkur að fjárhæð 3,5 til þriggja ára var veittur vegna verkefnisins sameining safna Fjarðabyggðar og ársstyrkur að fjárhæð 2 m.kr. vegna eftirfylgni með athugasemdum safnaráðs, viðbragðsætlanir og neyðarkistur.
Vísað til úrvinnslu hjá menningarstofu.
7.
Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands
Málsnúmer 2511096
Fjallað um málefni Sinfóníuhljómsveitar Austurlands, samstarf og fjármögnun til verkefna hennar. Stjórn fól forstöðumanni að útfæra ramma að samkomulagi um árlegt framlag til þriggja ára til eflingar starfs Sinfóníuhljómsveitar Austurlands.
Stjórn samþykkir tillögu forstöðumanns um árlegt fast framlag að fjárhæð 1 m.kr. til þriggja ára og felur honum að útfæra samkomulagið og bæjarstjóra undirritun þess.