Fara í efni

Stjórn menningarstofu

35. fundur
15. apríl 2026 kl. 14:30 - 15:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson formaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm varaformaður
Arndís Bára Pétursdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Farið yfir verkefni menningarstofu á komandi sumri og verkefni síðustu mánaða. Farið yfir frumdrög dagskrár Innsævis og innihalds ásamt verkefnum sumarsins sem tengjast hátíðinni.
Stjórn lýsir yfir ánægju með Innsævi og leggur áherslu á að kynning hefjist sem fyrst fyrir íbúum Austurlands.
2.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Farið yfir stöðu framkvæmda við fyrsta áfanga uppbyggingar Íslenska stríðsárasafnsins og fjárfestingaráætlun ásamt framgang framkvæmda við 2. áfanga uppbyggingarinnar.
Stjórn vísar umfjöllun um framkvæmdirnar og fjármögnun þeirra til bæjarráðs en leggur áherslu á að mikilvægt sé að hægt sé að ljúka 1. og 2. áfangi við endurgerð safnsins fylgi í beinu framhaldi þannig að safnið verði komið í rekstur með þeim áföngum sumarið 2027.
3.
Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2508067
Drög rammasamninga um framlög sveitarfélagsins til hátíðanna og framkvæmd þeirra voru send til forsvarsmanna hátíðanna til skoðunar að afloknum sameiginlegum fundi með fulltrúum þeirra. Engar athugasemdir hafa borist.
Stjórn staðfestir rammasamninga og felur bæjarstjóra undirritun þeirra og upplýsingafulltrúa eftirfylgni og samskipti við hátíðirnar.
4.
Varðveisluhúsnæði fyrir söfn
Málsnúmer 2604013
Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi um sameiginlegt varðveislurými safna á Austurlandi.
Stjórn menningarstofu hefur haft það sem markmið að byggja upp sameiginlegt varðveisluhúsnæði fyrir söfn Fjarðabyggðar og er með húsnæði sem verður byggt upp sem slíkt á Eskifirði. Þar af leiðandi telur stjórnin að hún hafi ekki þörf fyrir frekara varðveisluhúsnæði fyrir muni safnanna.
5.
Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
Málsnúmer 2602123
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið. Framkvæmdin fékk liðlega 45 m.kr. styrk.
6.
Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir
Málsnúmer 2601209
Framlögð niðurstaða í úthlutun styrkja Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands en Fjarðabyggð fékk styrk að fjárhæð 900.000 kr. vegna sýningarhönnunar Íslenska stríðsárasafnsins.