Fara í efni

Stjórn menningarstofu

36. fundur
11. maí 2026 kl. 14:00 - 15:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson formaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm varaformaður
Arndís Bára Pétursdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Fjallað um framgang framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið en uppsteypa gengur eftir áætlun og von er á bröggum til landsins í byrjun júní. Fjallað um framkvæmdir sem fylgja í kjölfar áfanganna. Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs mætir á fund.
2.
Verkefni safnanna studd af Safnasjóði
Málsnúmer 2510141
Forstöðumaður fór yfir framgang verkefna safna fyrir sumarið 2026, þ.m.t. verkefni sem hlutu styrki úr Safnasjóði á árinu 2026.
Fjallað um stefnumörkun safnanna, viðbragðsáætlanir, söfnunarstefnu og þjónustu. Sjóminjasafn Austurlands er komin í beina umsjón Menningarstofu þar sem Fjarðabyggð hefur tekið við rekstri þess. Hluti af stefnumörkun safnanna felst í því að sækja um viðurkenningu fyrir söfnin öll.
3.
Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2211009
Farið yfir framgang endurskoðunar stefnunnar og stöðu hennar en vinnustofan Þín rödd, okkar menning var haldin 8. apríl í Safnaðarheimili á Reyðarfirði með hagaðilum, kjörnum fulltrúum og starfsmönnum menningarstofu. Áformað er að vinnustofa 2 verði haldin með haustinu.
4.
Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins
Málsnúmer 2510038
Stjórn Sjóminjasafns Austurlands og bæjarstjórn hafa samþykkt slit safnsins og verið er að ganga frá yfirfærslu eigna og frágangi skjala. Safnið verður rekið eins og önnur minjasöfn í menningarmálaflokknum hjá Fjarðabyggð með sömu áherslum og skyldum og verið hefur.
5.
Skjala- og myndasafn Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2409018
Fjallað um málefni Mynda- og skjalasafns Fjarðabyggðar. Farið yfir verkefni tengd skjalasafni Fjarðabyggðar og flutning gagna ásamt almennri starfsemi safnsins.
6.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Forstöðumaður fór yfir framgang verkefna menningarstofu frá fyrri fundi og dagskrá Innsævis, lista- og menningarhátíðar Fjarðabyggðar.
7.
Umsókn í Bókasafnasjóð vegna fjölbreyttrar dagskrár á bókasöfnum
Málsnúmer 2602077
Menningarstofa Fjarðabyggðar leiddi umsókn í bókasafnasjóð fyrir viðburðahaldi á bókasöfnum í Fjarðabyggð sem hluti af reglulegum hátíðarhöldum. Úr styrksúthlutun hlaut MF 2.000.000 kr. fyrir þessu tímabundna verkefni á árinu 2026.
Stjórn þakkar fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu og starfsfólki menningarstofu og bæjarritara fyrir vel unnin störf.