Fara í efni

Stjórn menningarstofu

40. fundur
18. ágúst 2026 kl. 15:00 - 17:20
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Birgir Jónsson formaður
Tanja Tómasdóttir varaformaður
Júlíus Óli Jacobsen aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Sara Hjördís Blöndal, sýningarstjóri og sýningarhönnuður nýrra sýninga í Stríðsárasafni kynnir hugmyndavinnu og fjárhagsáætlun sýningargerðarinnar.
Stjórn þakkar kynningu og tekur málið til umfjöllunar á næsta fundi stjórnar.
2.
Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2607073
Umræða með sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og sýningarhönnuði um stöðu uppbyggingar fyrsta áfanga og tímasetningar vegna afhendingar á húsnæði ásamt verkefnum við annan áfanga uppbyggingarinnar miðað við áætlanir.
Sviðsstjóra falið að vinna að uppbyggingu annars áfanga eins og áætlanir og umsóknir um styrki gera ráð fyrir innan ársins 2026. Tekið fyrir á næasta fundi stjórnar.
3.
Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2211009
Kynning Tinnu Kristbjargar á framvindu endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar, en hún vinnur að ritstjórn stefnunnar og samráðsfundum með samfélaginu.
4.
Menningarstefna Austurlands
Málsnúmer 2608028
Framlögð til kynningar drög að menningarstefnu Austurlands.
Stjórn gerir ekki efnislegar athugasemdir við stefnuna sem slíka og fagnar gerð hennar.
5.
Verkefni menningarstofu 2025
Málsnúmer 2501084
Karitas Harpa fór yfir framvinduskýrslu sína á verkefnum í barnamenningu og tónlistaruppbyggingu á árinu 2026 og því sem er framundan í starfinu.
6.
Verkefni menningarstofu 2025
Málsnúmer 2501084
Marc Alexanders fór yfir framvinduskýrslu sína á verkefnum í listamannahúsum og skapandi sumarstörfum á árinu 2026 og því sem er framundan í starfinu.
7.
Málverkagjöf Christian Blache
Málsnúmer 2608067
Framlagt erindi frá Vilhjálmi Bjarnasyni þar sem honum er falið að bjóða Menningarstofu Fjarðabyggðar að gjöf tvö málverk eftir danska málarann Christian Vigilius Blache (1838?1920), sem kennd er við Skagen. Myndir eru keyptar á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn og málaðar um 1880. Myndin frá Eskifirði var seld undir heitinu, „Aften í Skærgaarde í Mandal“. Mynd frá Fáskrúðsfirði var seld undir heitinu„Skonnert under Kysten“.
Stjórn samþykkir að taka við verkunum og þakkar kærlega fyrir góðar gjafir.