Innkaup og útboð
Með innkaupareglum stuðlar Fjarðabyggð að því að vandað sé til innkaupa með hagkvæmum og vistvænum hætti.

Samkvæmt innkaupareglum Fjarðabyggðar er meginreglan sú að beitt skuli útboðum við innkaup sveitarfélagsins. Fjármála- og greiningarsvið annast öll útboðsmál Fjarðabyggðar, þar með talin forvöl, útboð, örútboð, verðfyrirspurnir og í sumum tilvikum verðkannanir. Fjármála- og greiningarsvið gætir þess að innkaup séu í samræmi við lög og reglur sem um innkaup gilda.
Síðast uppfært: 12.08.2025