Fara í efni
02.03.2026 Tilkynningar

-Uppfært- Afar slæm veðurspá: upplýsingar um skólahald, Strætó, móttökustöðvar og hafnir

Deildu

Skólahald

Skólar í Fjarðabyggð eru opnir í dag, 2. mars, en þeim verður lokað í hádeginu samkvæmt nánari ákvörðun hvers skóla. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum frá skólum.

Í slæmu veðri er metið í hverjum byggðakjarna hvort skólahaldi er aflýst eða skólum haldið opnum. Ef skólahaldi er ekki aflýst er það lagt í hendur foreldra og forráðamanna að meta hvort börn séu send í skóla miðað við aðstæður og öryggi á hverjum stað.

  • Skólinn tekur alltaf tillit til veðurs við skráningu mætingar.
  • Ef foreldrar/forráðamenn meta aðstæður þannig að ekki sé óhætt að barn sæki skóla vegna veðurs, er mikilvægt að tilkynna skóla það.

Ef veður versnar meðan skóli stendur yfir

Ef veður versnar eða veðurútlit er slæmt á meðan skóli er starfandi getur verið nauðsynlegt að grípa til eftirfarandi ráðstafana:

  • Nemendur eru sendir fyrr heim, þó aðeins í samráði við foreldra/forráðamenn.
  • Nemendum er ekki hleypt út nema í fylgd fullorðinna.

Skólaakstur

Allur skólaakstur í Fjarðabyggð fellur niður mánudaginn 2. mars, vegna veðurspár.

Almenningssamgöngur – Strætó

Akstur Strætó er hafinn. Ferðir eftir hádegi munu falla niður ef veðurspá gengur eftir. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum þar sem staða ferða getur breyst með skömmum fyrirvara.

Móttökustöðvar

Móttökustöðvar verða einnig lokaðar ef veðurspá gengur eftir. Upplýsingar um lokanir og þjónustu verða uppfærðar eftir því sem ástand þróast.

Hafnir

Fjarðabyggðarhafnir biðja smábátaeigendur að huga að bátum sýnum í höfnum áður en veðrið skellur á. 

Almennt til íbúa
Íbúar eru beðnir um að huga vel að lausamunum og gera varúðarráðstafanir til að fyrirbyggja foktjón.

Skrifstofa Fjarðabyggðar

Móttaka Fjarðabyggðar lokar klukkan 12:00, erindum verður svarað í síma og tölvupósti.

Bókasöfn

Bókasöfn verða lokuð í dag.

Sundlaugar

Sundlaugar í Fjarðabyggð verða lokuð.

Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi

Lögreglan á Austurlandi hvetur þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni að vera heima. Þeir sem þurfa að vera á ferðinni fylgist vel með veðurspá og færð á vegum.