Boðað hefur verið til 420. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fimmtudaginn 3. september. Fundurinn verður haldinn í fundarsal bæjarskrifstofanna að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins eru meðal annars fjárhagsáætlanir Fjarðabyggðar, greinargerð um framkvæmdir ársins, staða úrgangsmála, uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og málefni Mjóeyrarhafnar.
Einnig verða meðal annars tekin fyrir mál sem tengjast skóla- og fræðslumálum, íþróttastyrkjum, skipulags- og framkvæmdamálum og uppbyggingu Íslenska stríðsárasafnsins.
Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á YouTube-rás Fjarðabyggðar.
Horfa á beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi
Fundarboð og dagskrá: Bæjarstjórn 420
