Boðað hefur verið til 421. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar miðvikudaginn 16. september. Fundurinn verður haldinn í fundarsal bæjarskrifstofanna að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins eru meðal annars starfs- og fjárhagsáætlanir fyrir árið 2027, uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins, miðbæjarkjarni á Reyðarfirði og málefni Mjóeyrarhafnar.
Einnig verða meðal annars tekin fyrir mál sem tengjast skipulags- og framkvæmdamálum, menningarstarfi, Íþróttaviku Evrópu, orkuöflun og nefndaskipan sveitarfélagsins.
Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á YouTube-rás Fjarðabyggðar.
Horfa á beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi
Fundarboð og dagskrá: Bæjarstjórn 421
