Fara í efni
29.09.2026 Tilkynningar

422. fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar 1. október

Deildu

Boðað hefur verið til 422. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fimmtudaginn 1. október. Fundurinn verður haldinn í fundarsal bæjarskrifstofanna að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins eru meðal annars fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2027, hönnun og útboð loftræstingar í Fjarðabyggðarhöllinni, viðbygging við verknámshús Verkmenntaskóla Austurlands og uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins.

Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á YouTuberás Fjarðabyggðar.

Horfa á beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi

Fundarboð og dagskrá: Bæjarstjórn 422