Fara í efni
04.11.2026 Tilkynningar

424. fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar 5. nóvember

Deildu

Boðað hefur verið til 424. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fimmtudaginn 5. nóvember. Fundurinn verður haldinn í fundarsal bæjarskrifstofanna að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins eru meðal annars fyrri umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, útsvar og fasteignagjöld fyrir árið 2027, auk erindisbréfs öldungaráðs og skipunar fulltrúa í ráðið.

Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á YouTube-rás Fjarðabyggðar.

Horfa á beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi

Fundarboð og dagskrá: Bæjarstjórn 424