Boðað hefur verið til 425. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fimmtudaginn 19. nóvember. Fundurinn verður haldinn í fundarsal bæjarskrifstofanna að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins eru meðal annars síðari umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, uppfærð tillaga að álagningarhlutföllum fasteignagjalda fyrir árið 2027 og síðari umræða um erindisbréf öldungaráðs.
Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á YouTube-rás Fjarðabyggðar.
Horfa á beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi
Fundarboð og dagskrá: Bæjarstjórn - 425.pdf
