Fara í efni
11.06.2026 Tilkynningar

- Uppfært- Áætluð vinna næstu daga við Fjarðarbyggðarhöllina

Deildu
default

Vegna hagstæðra veðurskilyrða hefur verktaka verið heimilað að halda úðun á sólavarnarlagi á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar áfram til kl. 19:00 í kvöld.

Vel verður fylgst með aðstæðum. Ef veðurskilyrði breytast verður vinnan stöðvuð.

Íbúar og gestir eru áfram beðnir um að leggja bílum sínum utan þess svæðis sem skilgreint hefur verið meðan á vinnu stendur

Uppfærðar upplýsingar um áætlaða vinnu næstu daga, tímasetningar og ráðstafanir vegna bílastæða má finna hér að neðan.

Um er að ræða úðun á sólarvarnarlagi á þak Fjarðabyggðarhallarinnar. Slík vinna verður eingöngu framkvæmd þegar veðuraðstæður eru hagstæðar og þurrt er í veðri.

Úðun hefst ekki nema að fengnu leyfi Fjarðabyggðar.

Áætlað er að vinna við úðun á þakinu fari fram á eftirfarandi dögum milli kl. 09:00 og 16:00, að því gefnu að veður leyfi:

  • Fimmtudaginn 11. júní
  • Laugardaginn 13. júní
  • Sunnudaginn 14. júní
  • Mánudaginn 15. júní

Gangi veðurspá eftir er gert ráð fyrir að verkinu ljúki á þessum dögum. Ef veður setur strik í reikninginn verður staðan metin að nýju eftir helgi.

Bílastæði og öryggi

Til öryggis eru íbúar og gestir við neðangreind húsnúmer vinsamlegast beðnir um að leggja bílum sínum utan þess svæðis sem merkt er á meðfylgjandi mynd meðan á vinnu stendur:

  • Melgerði 7, 9, 11 og 13
  • Sunnugerði 3, 5b, 7, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 21 og 22
  • Heiðarvegur 2, 4, 6, 8, 10 og 12
  • Austurvegur 5, 7, 9, 10, 11 og 13
  • Bílastæði við grunnskólann

Fjarðabyggð þakkar íbúum og gestum svæðisins fyrir skilninginn og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.