Kynnt er tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna athafna- og iðnaðarsvæðis á Hjallaleiru við botn Reyðarfjarðar. Reitur AT-300 er stækkaður til norðurs og norðausturs þannig að hann nái yfir nýja vegtengingu við Ægisgötu og að athafnasvæði AT-310 og minni háttar færsla verður á mörkum reita AT-300 og I-300 til samræmis við lóðamörk. Nánari upplýsingar er að finna í tillögunni, sem er aðgengileg í skipulagsgátt
(https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1068) .
Tillagan liggur einnig frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Mikilvægt er að íbúar og aðrir hagaðilar kynni sér tillöguna og komi á framfæri ábendingum. Frestur til að skila inn ábendingum rennur út 25.02.2026 og þeim skal skilað inn í skipulagsgáttina.
Kynning tillögunnar er í samræmi við 30. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
