Fara í efni
26.05.2026 Tilkynningar

Aðeins matarleifar í tunnuna fyrir matarleifar

Deildu

Fjarðabyggð vekur athygli íbúa og fyrirtækja á því að í tunnu fyrir matarleifar má eingöngu setja matarleifar, samkvæmt uppfærðum leiðbeiningum Moltu í Eyjafirði. Mikilvægt er að nota aðeins grænu maíspokana undir matarleifar.

Samkvæmt Kristjáni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Moltu, hefur færst í vöxt að ýmiss konar óæskilegur úrgangur berist með matarleifum, sem veldur vandræðum í vinnslu.

„Við erum að fá meira af almennu rusli og öðrum hlutum sem eiga alls ekki heima í matarleifunum. Þetta gerir vinnsluna erfiðari, eykur urðun og getur skemmt búnaðinn. Við erum að fá plast, gler, skó og jafnvel hluta úr bílvélum. Garðaúrgangur, greinar, tré og afskorin blóm eiga heldur ekki heima þar, því slíkt getur skemmt vinnslubúnaðinn hjá okkur,“ segir Kristján.

Matarleifar frá Fjarðabyggð eru unnar hjá Moltu í Eyjafirði þar sem þeim er breytt í moltu sem nýtist meðal annars til landgræðslu, í garða íbúa og til jarðvegsbóta í sveitum. Íbúar geta nálgast ókeypis moltu á losunarsvæðum fyrir garðaúrgang í sumar.

„Því betur sem við flokkum, því betur nýtist úrgangurinn og því minna þarf að urða,“ segir Kristján að lokum.

Á vef Moltu má nálgast leiðbeiningar um flokkun matarleifa. Fjarðabyggð hvetur íbúa og fyrirtæki til að kynna sér leiðbeiningarnar vel og leggja sitt af mörkum til betri flokkunar.