Veðurspá fyrir Fjarðabyggð mánudaginn 2. mars er afar slæm. Íbúar eru beðnir um að fylgjast vel með veðurspá (vedur.is) og tilkynningum hér á vef sveitarfélagsins og á samfélagsmiðlum Fjarðabyggðar.
Næsta uppfærsla frá sveitarfélaginu verður birt fyrir kl. 07:00 mánudaginn 2. mars.
Ef fella þarf niður skólaakstur eða skólahald verður það einnig tilkynnt með skilaboðum frá skólum til foreldra og forráðamanna.
Skólaakstur
Allur skólaakstur í Fjarðabyggð fellur niður mánudaginn 2. mars vegna veðurs.
Skólahald og frístundastarf
Í slæmu veðri er metið í hverjum byggðakjarna hvort skólahaldi er aflýst eða skólum haldið opnum. Ef skólahaldi er ekki aflýst er það lagt í hendur foreldra og forráðamanna að meta hvort börn séu send í skóla miðað við aðstæður og öryggi á hverjum stað.
- Skólinn tekur alltaf tillit til veðurs við skráningu mætingar.
- Ef foreldrar/forráðamenn meta aðstæður þannig að ekki sé óhætt að barn sæki skóla vegna veðurs, er mikilvægt að tilkynna skóla það.
Ef veður versnar meðan skóli stendur yfir
Ef veður versnar eða veðurútlit er slæmt á meðan skóli er starfandi getur verið nauðsynlegt að grípa til eftirfarandi ráðstafana:
- Nemendur eru sendir fyrr heim, þó aðeins í samráði við foreldra/forráðamenn.
- Nemendum er ekki hleypt út nema í fylgd fullorðinna.
Almenningssamgöngur – Strætó í Fjarðabyggð
Búast má við miklum röskunum á ferðum Strætó í Fjarðabyggð á morgun.
- Mögulega næst að fara ferð í fyrramálið.
- Líklegt er að allar ferðir falli niður eftir hádegi, eftir þróun veðurs og færðar.
Við hvetjum farþega til að fylgjast með tilkynningum þar sem staða ferða getur breyst með skömmum fyrirvara.
Móttökustöðvar
Móttökustöðvar verða lokaðar ef veðurspá rætist.
Upplýsingar um lokanir og þjónustu verða uppfærðar.
Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi
Lögreglan á Austurlandi hvetur þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni að vera heima. Þeir sem þurfa að vera á ferðinni fylgist vel með veðurspá og færð á vegum.
