Fara í efni
07.08.2026 Tilkynningar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin

Deildu

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst 27. júlí. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er meðal annars ætluð kjósendum sem geta ekki sótt kjörfund á kjördag.

Íbúar í Norðausturkjördæmi geta skilað kjörgögnum sínum á skrifstofu Fjarðabyggðar á eftirfarandi tímum:

Mánudaga til fimmtudaga: kl. 10:00–16:00
Föstudaga: kl. 10:00–12:00

Kosið á Eskifirði

Í Fjarðabyggð er hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofu sýslumanns á Eskifirði á eftirfarandi tímum:

Mánudaga til fimmtudaga: kl. 9:00–15:00
Föstudaga: kl. 9:00–14:00

Frá og með 17. ágúst verður opið á Eskifirði frá 09:00 – 17:00 alla virka daga. 

Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki.

Á Ísland.is má finna upplýsingar um aðra staði og opnunartíma atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is, geta kjósendur jafnframt kannað hvort þeir séu á kjörskrá.

Á vef Stjórnarráðs Íslands má sjá lista yfir staði erlendis þar sem íslenskir ríkisborgarar geta kosið utan kjörfundar. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis fer fram hjá sendiráðum Íslands, aðalræðisskrifstofum, fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum og hjá ræðismönnum samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins.

Kjósandi sem greiðir atkvæði utan kjörfundar ber sjálfur ábyrgð á að atkvæðið berist viðkomandi kjörstjórn í tæka tíð.