Fara í efni
23.10.2026 Tilkynningar

Átt þú rétt á niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar?

Deildu
Senior hands warming themselves by an electric heater

Íbúar Fjarðabyggðar sem hita heimili sitt með rafmagni eða olíu og hafa ekki aðgang að fullnægjandi húshitun með jarðvarma geta átt rétt á niðurgreiðslu frá ríkinu. Gott er að skoða orkureikninginn og kanna hvort niðurgreiðslan sé þegar til staðar.

Niðurgreiðslunni er ætlað að jafna húshitunarkostnað heimila óháð aðgengi að jarðvarma. Sækja þarf sérstaklega um hana hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Hverjir geta átt rétt?

Eigendur eða leigjendur íbúðarhúsnæðis geta sótt um ef lögheimili þeirra er skráð í húsnæðinu. Íbúðin þarf að hafa eigið fastanúmer og vera:

  • hituð með rafmagni, þar á meðal með varmadælu, utan jarðvarmaveitusvæðis,
  • hituð með olíu eða
  • tengd kyntri hitaveitu.

Búseta ein og sér nægir ekki. Lögheimili þarf að vera skráð í húsnæðinu.

Kirkjur, safnahús, félagsheimili og björgunarsveitarhús geta einnig átt rétt á niðurgreiðslu.

Byrjaðu á að skoða orkureikninginn

Margir njóta þegar niðurgreiðslu og þurfa því ekki að sækja um aftur.

Á rafmagnsreikningi getur niðurgreiðslan komið fram sem sérstakur liður merktur „Niðurgreiðslur“, með frádreginni upphæð. Framsetning getur verið mismunandi eftir veitufyrirtækjum.

Ef þú finnur ekki slíkan lið eða ert í vafa skaltu hafa samband við veitufyrirtækið eða Umhverfis- og orkustofnun og kanna málið.

Hvernig er sótt um?

Sótt er um rafrænt hjá Umhverfis- og orkustofnun á gagnaform.uos.is með rafrænum skilríkjum. Stofnunin metur hvort skilyrði fyrir niðurgreiðslu séu uppfyllt.

Ekki þarf að endurnýja umsókn meðan lögheimili helst óbreytt, en tilkynna þarf stofnuninni ef aðstæður breytast.

Í tvíbýli eða fjölbýli þar sem rafmagn er ekki sérmælt getur húsfélag sótt um fyrir hönd eigenda.

Ertu að íhuga varmadælu?

Einnig er hægt að sækja um eingreiðslu vegna kaupa á varmadælu að uppfylltum skilyrðum. Kynntu þér upplýsingar um varmadælur og umsóknir hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Nánari upplýsingar

Á vef Umhverfis- og orkustofnunar eru nánari upplýsingar um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

Einnig er hægt að hafa samband í síma 569 6000, virka daga kl. 8:30–15:00.