Fara í efni
13.04.2026 Tilkynningar

Bæjarráð samþykkir að lækka gjaldskrár um 3%

Deildu

Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu um að allar þjónustugjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði lækkaðar um 3% frá og með næstu mánaðarmótum. Aðgerðin er liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu.

Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í efnahagslífinu og hafa bein áhrif á kostnaðarþróun. Með þessari ákvörðun vill Fjarðabyggð senda skýr skilaboð um að sveitarfélagið ætli að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa.

Að mati bæjarráðs er svigrúm til lækkunarinnar til staðar, á grundvelli bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar.

Jafnframt hvetur bæjarráð stjórnvöld til að grípa til sambærilegra aðgerða á sínum vettvangi, með endurskoðun gjaldskráa ríkisins og lækkun álaga þar sem svigrúm er til staðar.