Boðað hefur verið til 419. fundar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fimmtudaginn 20. ágúst. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunni að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins eru meðal annars fundargerðir bæjarráðs, skipulags- og framkvæmdanefndar og fjölskyldunefndar. Þar verða meðal annars tekin fyrir mál sem tengjast framkvæmdum og skipulagi, íþrótta- og tómstundastyrkjum og fundaáætlun bæjarstjórnar.
Fundurinn verður að venju sýndur í beinni útsendingu á YouTube-rás Fjarðabyggðar.
Horfa á beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi
Fundarboð og dagskrá: 419. bæjarstjórn
