Fara í efni
04.03.2026 Tilkynningar

Brák íbúðafélag auglýsir íbúð lausa til leigu á Eskifirði

Deildu

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð að Ystadal 9. Eskifirði Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð í parhúsi , um 120 m2 að stærð.  

Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Umsókn um leigu

Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda  ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.