Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á 409 fundi sínum þann 05.02.2026 að auglýsa tillögu um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar á Reyðarfirði vegna íbúðarbyggðar á lóðinni Búðareyri 12. Þar er fyrirhugað að reisa þrjú lítil fjölbýlishús. Tillagan er í samræmi við samsvarandi breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem þegar hefur verið auglýst. Lóðin er í gildandi aðalskipulagi ætluð fyrir verslun og þjónustu en breyting yfir í íbúðarbyggð er í góðu samræmi við aðliggjandi landotkun. Íbúar og aðrir hagaðilar eru hvattir til kynna sér efni tillögunnar og senda inn athugasemdir, ef einhverjar eru. Auglýsing tillögunnar er í samræmi við 41. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010. Frestur til að leggja inn athugasemdir rennur út 23.03.2026 Tillagan er aðgengileg á bæjarskrifstofum og í skipulagsgátt.
