Fara í efni
20.03.2026 Tilkynningar

Breytingar á opnunartíma móttökustöðva í Fjarðabyggð

Deildu

Gerðar hafa verið breytingar á opnunartíma móttökustöðva í Fjarðabyggð. Breytingarnar taka til bæði opnunardaga og opnunartíma á nokkrum starfsstöðvum sveitarfélagsins.

Breytingarnar taka gildi mánudaginn 23. mars.

Nýr opnunartími móttökustöðva

Norðfjörður

  • Mánudagar: 13:00–17:00
  • Fimmtudagar: 13:00–17:00
  • Laugardagar: 10:00–14:00, fyrsta og þriðja laugardag í mánuði

Eskifjörður

  • Þriðjudagar: 13:00–17:00
  • Föstudagar: 13:00–17:00
  • Laugardagar: 10:00–14:00, fyrsta og þriðja laugardag í mánuði

Reyðarfjörður

  • Mánudagar: 12:00–17:00
  • Þriðjudagar: 10:00–14:00
  • Miðvikudagar: 13:00–17:00
  • Fimmtudagar: 09:00–12:00
  • Föstudagar: 13:00–17:00
  • Laugardagar: 10:00–14:00, annar og fjórði laugardagur í mánuði

Fáskrúðsfjörður

  • Þriðjudagar: 15:00–17:00
  • Fimmtudagar: 13:00–17:00
  • Laugardagar: 10:00–14:00, annar og fjórði laugardagur í mánuði

Stöðvarfjörður

  • Miðvikudagar: 14:00–16:00

Breiðdalsvík

  • Miðvikudagar: 10:00–13:00

Íbúar eru hvattir til að kynna sér nýjan opnunartíma áður en haldið er á móttökustöð.