Fara í efni
28.05.2026 Tilkynningar

Grenndarstöðvar settar upp í Fjarðabyggð

Deildu

Unnið er að uppsetningu nýrra grenndarstöðva í Fjarðabyggð þar sem íbúar geta komið með flokkaðan úrgang til endurvinnslu.

Búið er að setja upp og merkja fyrstu grenndarstöðina, en hún er staðsett á Fáskrúðsfirði. Tvær stöðvar til viðbótar verða tilbúnar fljótlega uppúr næstu viku þegar framkvæmdum við þær verður lokið. Þær eru staðsettar í Neskaupstað og á Eskifirði.

Grenndarstöðvar verða staðsettar við móttökustöðvar í öllum kjörnum nema á Breiðdalsvík. Þar verður grenndarstöðin staðsett við þjónustumiðstöðina á Breiðdalsvík til að byrja með.

Verkinu verður fram haldið á næstu vikum og er stefnt að því að allir stöðvar verði tilbúnar eigi síðar en um miðjan júní.

Á grenndarstöðvunum verður hægt að skila eftirfarandi úrgangsflokkum:

  • pappír
  • textíl
  • plasti
  • málmi
  • gleri
  • kertavaxi
  • rafhlöðum

Grenndarstöðvarnar eru liður í því að bæta aðgengi íbúa að flokkun og endurvinnslu og gera öllum auðveldara að koma verðmætum úrgangi í réttan farveg.