Fara í efni
06.04.2026 Tilkynningar

Gul veðurviðvörun á Austurlandi frá kl. 19:00 í kvöld

Deildu

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland sem tekur gildi mánudaginn 6. apríl kl. 19:00 og gildir til kl. 02:00 aðfaranótt þriðjudags 7. apríl.

Samkvæmt viðvöruninni er búist við austan 13–18 m/s og mikilli snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni. Gera má ráð fyrir talsverðum samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum.

Íbúar eru hvattir til að huga að niðurföllum og tryggja að vatn geti runnið greiðlega frá. Ferðalangar eru jafnframt hvattir til að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum áður en lagt er af stað, ekki síst á fjallvegum í umdæminu.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Veðurstofu Íslands og hjá Vegagerðinni.