Uppfært kl. 16:14: Vinnu við geislatæki í Breiðdal er lokið og nú er unnið að því að skola vatnslagnirnar. Á meðan gætu orðið tímabundnar truflanir á vatnsrennsli.
Íbúum á Breiðdalsvík og í Breiðdal er áfram ráðlagt að sjóða vatn til neyslu fram til kl. 19 í kvöld. Eftir þann tíma verður óhætt að neyta vatns án þess að sjóða það fyrst.
Vegna viðhalds á geislatæki í Breiðdal er íbúum á Breiðdalsvík og í Breiðdal ráðlagt að sjóða allt vatn sem ætlað er til neyslu.
Áætlað er að vinnunni ljúki síðar í dag. Ný tilkynning verður send þegar henni er lokið.
